top of page

GRAFÍSK HÖNNUN

SAMFÉLAGSMIÐLAR

EFNISGERÐ

SAMFÉLAGSMIÐLADAGATAL 2020-2021

Eyðirðu of miklum tíma á samfélagsmiðlum?

Ertu að vandræðast yfir hverju þú átt að pósta?

Missirðu af markaðstækifærum hátíðisdaga?

Situr efnisgerð á hakanum?

Í hverjum mánuði geri ég samfélagsmiðladagatal

sem gæti hjálpað þér!

Sjá meira.

SAMFÉLAGSMIÐLADAGATAL

Í hverjum mánuði set ég upp dagatal með hugmyndum að samfélagsmiðlapóstum og efnisgerð (blogg, skýringarmyndir, video ofl.). Dagatalið inniheldur einnig alla íslenska hátíðisdaga, ýmsa viðburði, áhugaverða alþjóðlega „day of“ daga ofl sniðugt.

HVERNIG NÝTIST DAGATALIÐ ÞÉR?

Calender

Þú getur gert þetta grunndagatal að þínu eða ég get aðlagað það fyrir þig að þínum markhóp og markmiðum.

LEIÐ 1

GRUNNDAGATAL

Almennt dagatal sem þú aðlagar að þér.

-

Ef þig vantar bara skipulag og hugmyndir að efni er þetta nóg fyrir þig. Þú aðlagar svo dagatalið að þinni þjónustu og markmiðum.

 

  • Þú sparar tíma í hugmyndavinnu

  • Missir ekki af mikilvægum dögum

  • Aukið skipulag = minni vinna

-

Verð frá 5.500,- á mán.

INNIFALIÐ:  Mánaðarleg eftirfylgni

LEIÐ 2

SÉRSNIÐIÐ Dagatal

Sérsniðið samfélagsmiðladagatal fyrir þig.

-

Þú færð skýra áætlun sem auðvelt er að fylgja, með skilgreindri efnisgerð fyrir þinn markhóp ásamt birtingaplani: hvað, hvar, hvenær.

  • Þú sparar enn meiri tíma

  • Veist nákvæmlega hvað þú átt að gera

-

Verð frá 19.900,- á mán.

INNIFALIÐ:  Vikuleg eftirfylgni

AUKA

EFNI + UMSJÓN

Viltu hjálp með efnisgerð, umsjón eða uppsetningu samfélagsmiðlanna þinna?

​Ég get séð um þetta fyrir þig að litlu eða öllu leyti, hvað sem hentar þér best.

Hittumst, hringjumst eða skjáumst!

1

Efni, t.d. bloggpistlar, kennslumyndbönd og skýringarmyndir eru frábær tæki til að sýna og sanna þína þjónustu/vöru.

2

Samfélagsmiðlar eru hnitmiðuð og ódýr leið til að tengjast nýjum viðskiptavinum og halda í gamla með því að deila gæðaefni.

3

Með góðu skipulagi og vandaðri efnisgerð geturðu nýtt þetta markaðstækifæri með lítilli vinnu.

AFHVERJU SAMFÉLAGSMIÐLAR OG EFNISGERÐ?

Mynd_Anita_2020.jpg

Hæ,

ég heiti Anita,

Ég hef reynslu af fyrirtækjarekstri og veit hvað þú ert með margt á þinni könnu! Ég veit líka hversu mikill hausverkur samfélagsmiðlar geta verið og hversu tímafrekt það er að ákveða hverju á að pósta hvar, skrifa texta, vinna myndir, skrifa blogg, klippa video, velja hashtags, reyna að gera þetta allt flott og missa ekki þráðinn.

Mín þjónusta miðast við að taka þennan hausverk af þér á viðráðanlegu verði fyrir lítil fyrirtæki. Þú velur þjónustustig sem hentar þér og hættir strax að láta samfélagsmiðla og efnisgerð sitja á hakanum!

grafískur hönnuður til 18 ára, með 8 ára reynslu af efnisgerð og umsjón samfélagsmiðla.

Gluggað í hönnunarmöppuna mína

Ókei, hvernig virkar þetta?

Og, afhverju geri ég samfélagsmiðladagal í hverjum mánuði?

Grunndagatal: Þetta er grindin sem ég set upp fyrir hvern mánuð. Hér skrifa ég t.d. á fimmtudegi: „Deildu stuttu how-to myndbandi um vinsælustu vöruna þína.“ Og 14. janúar skrifa ég t.d.: „Minntu á Valentínusardaginn sem er eftir mánuð með rómó kvóti sem tengist þinni þjónustu á fyndinn hátt.“

Sérsniðið  dagatal: Hér aðlaga ég grunndagatalið að þínu fyrirtæki. Þá gæti fimmtudagspósturinn litið svona út fyrir Katta kaffihúsið: „Deildu myndaseríu af sama kettinum sofandi á mismunandi stöðum yfir einn dag.“ Og 14. janúar: „Minntu á Valentínusardaginn framundan með mynd af hjarta teiknuðu í Cappucino froðu sem köttur er að lepja.“ Svo myndi ég mæla með hvar og hvenær t.d. svona: „FB kl. 16, IG kl. 20, Story: nokkur myndbrot af kettinum fá knús frá viðskiptavinum yfir daginn. 

Efni og umsjón: Þegar skipulagið er komið er næsta skref að skrifa, mynda, hanna og pósta efninu þínu. Þú getur gert þetta sjálf/ur eða fengið starfsmann mánaðarins í verkið. Og ef þú vilt að ég geri þetta fyrir þig skulum við tala saman. 

Takk fyrir að skrá þig!

Örstutt og hnitmiðuð vikuleg skilaboð til að halda þér við efnið og minna þig á tækifæri framundan.

​Þú getur afskráð þig hvenær sem er!

Vilt þú minnka tímann sem þú eyðir á samfélagsmiðlum?

 

Vantar þig grafíska hönnun?

Socolant Image
bottom of page